Fara í efni

Listería í kjúklingapasta

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Preppup kjúklingapasta frá fyrirtækinu Mealprep ehf. Listería (Listeria monocytogenes) greindist í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Preppup
  • Vöruheiti: Kjúklingapasta
  • Framleiðandi: Matarkompaní ehf.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: L 112 / 25.05.21
  • Geymsluskilyrði: 0-4°C
  • Dreifing: Nettó, Iceland, Hagkaup, Krambúðin, Kjörbúðin og á vef PreppUp   

Innköllun á kjúklingapasta

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila til verslunar eða fyrirtækisins gegn endurgreiðslu. Hægt er að hafa samband í síma 519-9887 eða með tölvupósti info@preppup.is til að fá frekari upplýsingar.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Ítarefni

Uppfært 27.05.21 kl. 10:55
Uppfært 27.05.21 kl. 13:43


Getum við bætt efni síðunnar?