Listería finnst í kjúklingastrimlum
Innkallanir -
22.03.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á Ali kjúklingastrimlum sem Matfugl ehf. framleiðir. Innköllunin er vegna þess að það greindist Listeria monocytogenis. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna úr verslunum og sent út fréttatilkynningu.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Ali Salt og pipar kjúklingastrimlar
- Framleiðandi: Matfugl ehf
- Nettóþyngd: 300 gr
- Lotunúmer: 1737432101 og 1737432111
- Síðasti notkunardagur: 04.04.2022 og 06.04.2022
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Strikamerki: 5690350285346
- Dreifing: Verslanir um allt land
Neytendur eiga ekki að neyta vörunnar heldur farga eða skila henni í næstu verslun. Frekar upplýsingar veitir Matfugl ehf. í síma 412-1400 eða sal@matfugl.is