Kristallamyndandi efni í fóðri
Innkallanir -
06.04.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
|
|
Í kjölfar ábendingar
Matvælastofnunar um mælingu á óæskilegum efnum í Icelandpet gæludýrafóðri
og kvartanir sem borist hafa frá gæludýraeigendum hefur Ifex innkallað
fóðrið úr verslunum. Við eftirlit MAST kom í ljós að í sumum tegundum Icelandpet gæludýrafóðurs er cyanursýra sem veldur kristallamyndun í þvagi dýra. Kristallarnir eru torleysanlegir og leiða til sjúkleika hjá gæludýrum. |
Vöruheiti: Icelandpet
Ábyrgðaraðili: Ifex, Óseyrarbraut 22, 815 Þorlákshöfn. Framleiðandi: Fihumin f Gesellschaft mbH, georg-Busse Strase 43 22949, Ammersbak, Hollandi
Ástæða: Fóðrið inniheldur cyanuracid sem veldur veikindum hjá gæludýrum. Strikanúmer 5-690875-364120
Laga- /reglugerðarákvæði: Lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Áætluð dreifing innanlands: Dreift í stórmörkuðum.
Ítarefni