Innköllun vegna tveggja ólöglegra lyfja í fæðubótarefnum
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun úr verslunum eftirfarandi vöru:
Varan inniheldur valerian root extract (Valeriana officinalis) og St. John's Wort extract (Hypericum perforatum) sem fengið hafa B-flokkun hjá Lyfjastofnun.
Vöruheiti: StressCaps.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd af FoodCaps ltd., Frakklandi. Innflutt til Íslands af Functional Food Products ehf./Vzell ehf., Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti: StressCaps inniheldur valerian root extract (Valeriana officinalis) og St. John's Wort extract (Hypericum perforatum) sem fengið hafa B-flokkun hjá Lyfjastofnun. Þessi flokkun þýðir að vara með þessum innihaldsefnum getur fallið undir lyfjalög. Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við vöruna.
Laga- /reglugerðarákvæði: 1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Sportlífs Holtagörðum og Glæsibæ. Varan er ekki lengur í dreifingu.
Ítarefni