Innköllun vegna ólöglegra lyfja í fæðubótarefnum
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun úr verslunum eftirfarandi vöru:
Varan inniheldur valerian root powder (Valeriana officinalis) sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun.
Vörumerki: BioTech USA.
Vöruheiti: Vitamin B-Complex 75 Complete Diatery Supplement with Antioxidants and Herbs.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd fyrir BioTech USA í Bandaríkjunum. Innflutt til Íslands af Heilsusporti ehf. (Sportlífi), Síðumúla 1, 108 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti: Vitamin B-Complex 75 Complete Diatery Supplement with Antioxidants and Herbs inniheldur valerian root powder (Valeriana officinalis) sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun. Þessi flokkun þýðir að vara með þessu innihaldsefni getur fallið undir lyfjalög. Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við vöruna.
Laga- /reglugerðarákvæði: 1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Sportlífs (vefverslun og verslanir fyrirtækisins í Glæsibæ og Holtagörðum).
Ítarefni