Innköllun á Póló súkkulaðikexi
Innkallanir -
01.06.2010
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Kexverksmiðjan Frón
hefur ákveðið í samvinnu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla í
varúðarskyni kexið Súkkulaði Póló vegna rangrar innihaldslýsingar en
vegna mistaka kemur ekki fram að í vörunni er undanrennuduft.
|
Ástæða
innköllunar: Varan getur verið
varasöm fyrir þá neytendur sem þjást af mjólkuróþoli eða ofnæmi
fyrir mjólkurafurðum en er fullkomlega örugg til neyslu fyrir þá sem
þola mjólkurafurðir. Innkölluð vara er: Súkkulaði Póló ( 250 g og 300g), allar dagsetningar. Dreifing: Verslanir um allt land. Framleiðandi: Kexverksmiðjan Frón, Tunguhálsi 11 |
Hægt er skila vörunni í verslunum þar sem hún var keypt og hjá Frón, Tunguháls 11, Reykjavík, milli 9 og 15 alla virka daga.
/Vefur Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar
Ítarefni