Innköllun á grænmetis grillbuffi
Aðföng hafa, í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að endurbæta umbúðamerkingar Himneskt grænmetis grillbuff þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki tilgreindir á umbúðum vörunnar.
Varan: Grænmetis grillbuff, merkt Himneskt, 320 g.
Strikanúmer 5690350051866.
Ábyrgðaraðili vöru: Aðföng, Reykjavík.
Samkvæmt innihaldslýsingu inniheldur varan kryddblöndu. Komið hefur í ljós að kryddblandan inniheldur sinnepsfræ og sellerífræ. Engar upplýsingar eru á umbúðum vörunnar að hún innihaldi sinnepsfræ og sellerífræ. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir sinnepi, sellerí eða afurðum úr þeim.
Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Bónus, Stórkaupa og 10-11 um land allt.
Varan á ekki að vera lengur í dreifingu. Fyrirtækið hefur fengið frest til 12. nóvember 2010 til að endurmerkja umbúðir og skal vanmerkt vara ekki vera á markaði eftir þennan tíma.
Ítarefni
/rvk.is