Innköllun á fæðubótarefni vegna ólöglegs innihaldsefnis.
Matvælastofnun hefur fengið eftirfarandi upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun á fæðubótarefni.
Varan inniheldur chysin sem hefur fengið B- flokkun hjá Lyfjastofnun.
Vörumerki: Scitec Nutrition.
Vöruheiti: Estro Block.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd fyrir Scitec Nutrition í Bandaríkjunum. Innflutt til Íslands af Heilsusporti ehf. (Sportlífi), Síðumúla 1, 108 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti: Estro Block inniheldur chrysin sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun. Þessi flokkun þýðir að vara með þessu innihaldsefni getur fallið undir lyfjalög. Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við merkingar vörunnar.
Laga- /reglugerðarákvæði: 1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands: Einungis í Reykjavík. Verslanir Sportlífs (vefverslun og verslanir fyrirtækisins í Glæsibæ og Holtagörðum).
Ítarefni