Hætta á að matarílát fyrir börn brotni og valdi bruna
Innkallanir -
28.05.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við HEROISK og TALRIKA matarílátum fyrir börn sem seld eru í IKEA vegna hættu á að þau brotni og valdi bruna. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og gert Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs viðvart.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vörurnar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli, fóður og matvælasnertiefni.
Innköllunin á einungis við um HEROISK og TALRIKA diska, skála og bolla:
- HEROISK skálar 14 grænt/gult 2 í pk.
- HEROISK bollar rautt/gult, 2 í pk.
- HEROISK diskar 22 rautt/grænt, 2 í pk.
- HEROISK hliðardiskar blátt/rautt, 2 í pk.
- TALRIKA djúpir diskar 20 ljósgrænt, 4 í pk.
- TALRIKA hliðardiskar 19 dökkblátt, 4 í pk.
- TALRIKA bollar rautt, 4 í pk.
Kaupendur geta skilað vörunum til IKEA gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri IKEA í síma 520 2500 og á IKEA.is.