Grunur um lifrarbólgu A veiru í frosnum jarðaberjum
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um að Samkaup hafi, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, ákveðið að innkalla af markaði frosin jarðarber frá COOP með strikamerkinu 7340011360377 þar sem grunur leikur á um að berin séu menguð af veiru sem veldur lifrarbólgu A. COOP matvælaframleiðandinn hefur í dag gripið til sams konar innköllunar í samráði við matvælayfirvöld í Danmörku og Svíþjóð.
- Vöruheiti: „COOP Jordbær“.
- Nettóþyngd: 500 g
- Sölu- og dreifingaraðili: Samkaup, Krossmóa 4 230 Reykjanesbæ
- Best fyrir merking: Allar dagsetningar
- Umbúðir: Plastpokar
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Verslanirnar Nettó, Samkaup Strax, Samkaup Úrval og Kaskó.
Grunur hefur vaknað um að hluti framleiðslunnar hafi mengast af lifrarbólgu A veirunni. Ekki hefur verið sýnt fram á tilvist veirunnar í berjunum, en vegna tengsla milli faraldurs í Skandinavíu og neyslu berjanna hefur COOP ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni. Neytendum er ráðlagt að skila vörunni til Samkaups eða viðkomandi verslunar. Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Jónsson hjá Samkaup (thorgeir@samkaup.is).
Ítarefni
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um innkallanir
- Nýr faraldur af lifrarbólgu A - Frétt Matvælastofnunar frá 30.05.13
- Lifrarbólgu A faraldur - Frétt Matvælastofnunar frá 24.04.13
- Matvælastofnun varar áfram við neyslu frosinna berja - Frétt Matvælastofnunar frá 12.04.13
- Sjóðið frosin ber - frétt Matvælastofnunar frá 15.03.13
- Upplýsingasíða Embættis landlæknis um lifrabólgu A