Grunur um hrossakjöt í lasagne
Innkallanir -
14.02.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Upplýsingar hafa borist Matvælastofnun um að Kaupás ehf. hafi, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði First Price Lasagne. Innköllunin er framkvæmd í varúðarskyni vegna gruns um að varan innihaldi hrossakjöt sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu.
- Vörumerki: First Price.
- Vöruheiti: Lasagne.
- Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Kaupás ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
- Auðkenni/skýringartexti: Kaupás ehf. innkallar í varúðarskyni First Price lasagne þar sem varan getur mögulega innihaldið hrossakjöt sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu.
- Laga- /reglugerðarákvæði: 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla. 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
- Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Kaupáss um land allt (Krónan, Nóatún, Kjarval).
Ítarefni