Glúten í glútenfríum maískökum
Innkallanir -
07.11.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar á innköllun á glútenfríum el TACO TRUCK Corn-Tortillum sem fyrirtæki Steindal ehf. flytjur inn. Ástæðan fyrir innköllun er að það greindust leifar af glúteni í tortillum. Innköllun nær einungis til Corn-Tortillas, tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni. Varan hefur verið tekin úr sölu og innkölluð frá neytendum.
Innköllunin á einungis við um eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vörumerki: El Taco Truck
- Vöruheiti: Corn Tortillas 195gr
- Lýsing á vöru: Mexíkó vefjur
- Framleiðandi: El Taco Truck
- Innflytjandi: Steindal ehf
- Framleiðsluland: Mexíkó
- Rekjanleika upplýsingar: allar lotur
- Strikanúmer: 7350115945011
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifingalisti: Allar verslanir Krónunnar og Melabúðin
Hægt er að skila vörunni til innflytjanda og fá endurgreitt. Varan er skaðlaus þeim sem eru ekki með óþol eða ofnæmi fyrir glúteni.