Glerbrot í jólabjór
Innkallanir -
14.12.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við Tuborg Julebryg í 330 ml. glerflöskum vegna þess að glerbrot fannst í flösku. Ölgerðin Egill Skallagrímsson í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað tvær framleiðslulotur í varúðarskyni.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Tuborg
- Vöruheiti: Julebryg
- Strikamerki: 5690541009676
- Pökkunardagur: 18.11.21 og 19.11.21
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 18.08.22 og 19.08.22
- Lotunúmer: 02L21322 og 02L21323
- Umbúðir: Glerflöskur
- Nettómagn: 330 ml (33 cl)
- Fyrirtæki: Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir ÁTVR og ýmsir veitinga- og gististaðir
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni á þann stað sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Ölgerðinni
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir