Galli í dósum með bökuðum baunum
Innkallanir -
27.03.2014
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á bökuðum baunum vegna galla í dósum.
- Vöruheiti: Crosse & Blackwell Baked beans
- Strikanúmer: 05000117088873
- Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Ísland verslun hf.
- Auðkenni/skýringartexti: Galli við húðun á innra byrði umbúða, en staðfest er að á því er ryð.
- Framleiðsluland: Bretland
- Laga- /reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
- Áætluð dreifing innanlands: Verslun Iceland í Engihjalla 8 og fyrrum verslun Iceland á Fiskislóð 3.
Viðskiptavinum er bent á að fá vörunni skipt í verslun Iceland, Engihjalla 8.