Fara í efni

Framleiðslugalli á safa

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af  Beutelsbacher/Demeter epla-gulrótasafa sem Innnes flytur inn vegna gerjunar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðvirðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Beutelsbacher / Demeter
  • Vöruheiti: Epla- gulrótasafi
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 01.03.26
  • Nettómagn: 750 ml
  • Strikamerki: 4106060070604
  • Framleiðandi: Beutelsbacher Fruchtsaftkelterei GmbH
  • Framleiðsluland: Þýskaland
  • Innflutningsfyrirtæki: Innnes ehf., Korngörðum 3, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Nettó Mjódd, Ísafirði, Selhellu, Egilsstöðum, Granda, Selfossi, Glerártorgi, Húsavík og Engihjalla, Fjarðarkaup (Fræið), Kjörbúðin Hellu.

Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar til endurgreiðslu.

Ítarefni:

 


Getum við bætt efni síðunnar?