Fara í efni

Framleiðslugalli á baunasúpugrunni

Matvælastofnun varar við Kötlu baunasúpugrunni vegna framleiðslugalla en rof var á hitastýringu í dreifikerfi og er varan því ótrygg. Fyrirtækið hafði samband við Matvælastofnun og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og hafið innköllun á vörunni.

Eftirfarandi framleiðslulotur eru innkallaðar:

  • Vöruheiti: Baunasúpugrunnur
  • Strikamerki: 5690591156801
  • Best fyrir: 12.05.2025, 13.05.2025, 14.05.2025
  • Nettóþyngd: 1 L
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Sölustaðir: Bónus, Krónan og Hagkaup

Neytendur er bent á að neyta ekki vörunnar heldur farga eða skila í næstu verslun til að fá endurgreitt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?