Eitrað illgresi í klettasalati
Innkallanir -
15.01.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigiseftirliti Reykjavíkur um innköllun á salati. Illgresi fannst í nokkrum pokum af ítölsku klettasalati eftir að nokkrir neytendur höfðu fengið eitrunaráhrif, m.a. sviða og bólgur í munnholi. Fyrirtækið innkallaði vörurnar strax í samráði við heilbrigðiseftirlitið. Ráðlagt er að skola salat og tína úr lauf sem eru frábrugðin.
- Vörumerki: Hollt og Gott ehf.
- Vöruheiti: Klettasalat.
- Framleiðandi: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík. Upprunaland: Ítalía
- Nettóþyngd: 75 g.
- Best fyrir: 16. og 17. Janúar 2013
- Strikanúmer: 5690350038577
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Klettasalat.
- Framleiðandi: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
- Upprunaland: Ítalía
- Nettóþyngd: 75 g.
- Best fyrir: 16. og 17. Janúar 2013
- Strikanúmer: 5690628007724
- Dreifing: Verslanir um land allt.