Aðskotahlutur í niðursoðnum tómötum
Innkallanir -
23.11.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið (RASFF) og dönsku matvælastofnunina um innköllun á matvælum vegna þess að aðskotahlutur (málmur) hafi fundist í einni dós af "First Price hakkede tomater" með lotunúmer DE2 M 222 í Danmörku. Innflytjandi hefur ekki staðfest að umrædd lota hafi komið til Íslands en hefur ákveðið að innkalla vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík.
- Vörumerki: First Price.
- Vöruheiti: Hakkede Tomater.
- Umbúðir: Niðursuðudósir.
- Nettóþyngd: 400 g
- Strikanúmer: 5701410046538.
- Lotunúmer: DE2 M 222.
- Laga- /reglugerðarákvæði: 14. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla auk áorðinna breytinga, 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum
- Dreifing: Matvælum með vörumerki "First Price" er dreift í verslunum Kaupáss (Nóatún, Krónan og Kjarval) um land allt.