Aðskotahlutur í haframjöli
Innkallanir -
08.11.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á haframjöli vegna aðskotahlutar.
- Vörumerki: First Price
- Vöruheiti: Havregryn - finvalsede.
- Framleiðandi: Framleitt fyrir SuperGros a/s.
- Innflytjandi: Kaupás, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
- Framleiðsluland: Þýskaland.
- Rekjanleikaupplýsingar (lotunúmer, geymsluþolsmerking): 02.08.2014
- Strikanúmer: 7311041072981
- Laga- og reglugerðaákvæði: 14. gr. reglugerðar nr. Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002, með síðari breytingum. Lög nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals um land allt.
Viðskiptavinum er bent á að fá vörunni skipt í næstu verslun Kaupás.