Aðskotahlutur í sælgæti
Innkallanir -
20.01.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af S-Märkt surt skum frá Candy people sem Core heildsala flytur inn vegna aðskotahluta. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Innköllun á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Candy people
- Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
- Innflytjandi: Core heildssala
- Best fyrir dagsetning/lotunúmer: 17-10-2024
- Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til næstu verslun eða á skrifstofu Core.