Aðskotahlutur í sælgæti
Innkallanir -
10.05.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af S-märkte orginalet Surt skum 70g sem heildverslun Core ehf. flytur inn vegna aðskotarhlutar sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF).
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Candy people
- Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
- Innflytjandi: Core heildssala
- Best fyrir dagsetning/lotunúmer: 02-11-2022 / 231102
- Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup.
Neytendum sem hafa keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203
Kópavogi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning heilbrigðiseftirlitsins
- Neytendavakt Matvælastofnunar
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar