Aðskotahlutur í fæðubótarefni
Innkallanir -
19.10.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu á Gula miðanum Magnesíum + kalk töflur sem Heilsa ehf. framleiðir vegna aðskotahluta sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Guli miðinn
- Vöruheiti: Kalk+Magnesíum
- Geymsluþol: Best fyrir lok Dagsetning: 02/2025
- Lotunúmer: 2501-1211
- Nettómagn: 180 töflur
- Strikamerki: 5690684000226
- Framleiðandi (pökkunaraðili): Heilsa, Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
- Dreifing: Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Mos, Apótekarinn, Austurbæjarapótek, Borgar Apótek, Fjarðarkaup, verslanir Hagkaupa, Heilsuhúsið, Heimkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Kauptún, verslanir Krónunnar, Lyf og heilsa, Lyfja, Lyfjaval, Lyfjaver, Melabúðin, Reykjanesapótek, Reykjavíkur Apótek, Verslanir Samkaupa (Iceland, Kjörbúðin, Krambúðin, Nettó) og Urðarapótek.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslun það sem hún var keypt.