Aðskotahlutur í brauði
Innkallanir -
24.01.2025
Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af Heimilisbrauði 770 g frá Myllunni vegna glerbrots af ljósaperu sem gætu verið í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Myllan
- Vöruheiti: Heimilisbrauð
- Geymsluþol: Best fyrir 27.01.2025
- Strikamerki: 5690568010235
- Nettómagn: 770 g
- Framleiðandi: Myllan, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík Framleiðsluland: Ísland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Myllan, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir um land allt.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila í verslun.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Myllunni
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík
- https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/innkallanir
- https://www.facebook.com/neytendavakt/