Ómerkt egg, sinnep og sellerí í lasagne
Frétt -
04.06.2018
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir eggjum, sinnepi eða selleríi við neyslu á nokkrum tegundum af lasagne merktum Krónunni. Vörurnar innihalda ofangreinda ofnæmis- og óþolsvalda án þess að það komi fram á merkingum.
Vörurnar voru til sölu í verslunum Krónunnar. Krónan hefur innkallað vörurnar af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Lasagna, Kjúklingalasagna, mexíkóskt lasagna.
- Umbúðir: Álbakkar
- Strikanúmer: 2208613010067, 2204532010065, 2204520010060
- Lotunúmer: Allar dagsetningar
- Nettó magn: 1 kg
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Framleiðandi: Esja kjötvinnsla
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifingaraðili: Krónan
- Dreifing: Allar verslanir Krónunnar
Viðskiptavinum sem verslað hafa vörurnar er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun. Vörurnar eru skaðlausar fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir eggjum, selleríi og/eða sinnepi.