Ómerkt egg í fullelduðum kjúklingabringum
Frétt -
01.10.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með eggjaofnæmi við neyslu á tilteknum Sous vide kjúklingabringum frá Stjörnufugli. Varan inniheldur egg án þess að það komi fram á merkingum. Fyrirtækið innkallar allar lotur með best fyrir dagsetningum fyrir 15.11.20, í samráði við Matvælastofnun.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Stjörnufugl Sous vide kjúklingabringur, Hvítlaukspipar Parmesan
- Strikamerki: 2328801005023
- Best fyrir dagsetningar: Allar fyrir 15.11.20
- Framleiðandi: Stjörnufugl, Saltvík, 162 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Krónunnar og verslanir Samkaupa (Nettó og Kjörbúðin)
Viðskiptavinir Krónunnar og Samkaupa sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum er bent á að neyta hennar ekki og skila í verslunina þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Stjörnufugls í síma 858-3400 eða á netfanginu addo hjá svinvirkar.is.