Mjólk í vegan Oumph! borgara
Frétt -
19.03.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun vekur athygli vegan neytenda og þeirra sem eru með ofnæmi- eða óþol fyrir mjólk á Oumph! borgara. Hann getur innihaldið snefil af mjólk sem er ekki merkt á umbúðum. Fyrirtækið Veganmatur ehf. hefur innkallað borgarana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Matvælastofnun fékk tilkynningu í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið, kannaði innflutning og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Einungis ein framleiðslulota er innkölluð eða með best fyrir dagsetningu (uppfært) 09.07.21:
- Vörumerki: Oumph!
- Vöruheiti: The Oumph! Burger 2x 113gr
- Framleiðandi: Food For Progress
- Innflytjandi: Veganmatur ehf.
- Framleiðsluland: Bretland
- Best fyrir dagsetning: 09.07.21
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Verslanir Krónunnar, Hagkaups og Nettó, Fjarðarkaup, Super1 og Melabúðin
Neytendur geta skilað vörunni á næsta sölustað gegn endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Veganmat ehf.
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á - upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Uppfært 20.03.20 kl. 12:33