Uppfært-Salmonella í karrí kryddi
Innkallanir -
12.07.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Uppfært-Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af karríi Hot madras curry sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna gruns um salmonellu smit. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlitsins HEF innkallað vöruna.
Matvælastofnun fékk vitneskju um innköllunina í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.
Innköllunin á einungis við eftirfarna framleiðslulotu með best fyrir dagsetninguna 30.6.2023:
- Vörumerki: TRS
- Vöruheiti: TRS Hot Madras Curry 100g og 400g
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf / Fiska.is
- Framleiðsluland: Indland
- Dreifing: Verslun fiska.is Nýbýlavegi 6,200 Kópavogi.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða fara með vöruna í verslun á Nýbýlavegi 6 gegn endurgreiðslu.