Salmonella í bananaflögum
Innkallanir -
12.07.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Tiger bananaflögum sem fyrirtækið Tiger flytur inn vegna salmonellu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska hraðvirðvörunarkerfið RASFF um matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Tiger
- Vöruheiti: Banana chips
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 16.09.2021
- Lotunúmer: 8008634
- Nettómagn: 125 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðsluland: Filippseyjar
- Innflytjandi: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
- Dreifing: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
Neytendum sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en
einnig er hægt að skila henni í Tiger þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar www.flyingtiger.com
Ítarefni
Fréttatilkynningu frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur