Ólöglegt varnarefni í brauðstöngum
Innkallanir -
16.12.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Grissini sesam brauðstöngum. Varan inniheldur varnarefnið etýlen oxíð sem ekki er leyfilegt að nota í matvælaframleiðslu. Krónan, sem flytur inn vöruna, hefur innkallað hana með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Buon Pane
- Vöruheiti: Grissini
- Strikanúmer: 8005221101842
- Nettó magn: 1kg
- Best fyrir: 18.3.2021
- Framleiðsluland: ítalía
- Dreifingaraðili Krónan
- Dreifing: Krónan Akrabraut, Krónan Fitum, Krónan Flatahrauni, Krónan Grafarholti, Krónan granda, Krónan Lindum, Krónan Mosfellsbæ, Krónan Norðurhellu, Krónan Selfossi, Krónan Vallarkór
Viðskiptavinum sem verslað hafa vöruna er bent á að skila henni í viðkomandi verslun. Nánari upplýsingar veitir Kristín Þorleifsdóttir á netfanginu kristin@kronan.is.