Fara í efni

Óleyfilegar lyfjaleifar í fiski

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Seamaid yellow catfish sem Fiska.is flytur inn vegna þess að það greindist Leucomalachite sem má ekki nota við matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.

Tilkynningin kom í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Seamaid
  • Vöruheiti: Yellow Catfish 1 kg
  • Best fyrir: 13-4-2026
  • Nettómagn: 1 kg
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Seamaid A/S Hjortehegnet 8-DK 2800kgs. Lyngby 
  • Framleiðsluland: Víetnam
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
  • Dreifing: Verslun Fiska.is

Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða fara með hana til verslunarinnar til að fá endurgreitt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?