Markaðssetning á heimaslátruðu lambakjöti
Innkallanir -
11.10.2018
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun framleiðandans Birkihlíðar í Skagafirði á heimaslátruðu lambakjöti sem selt var á bændamarkaði á Hofsósi 30. sep sl. Ástæða innköllunar er að slátrun fór ekki fram í viðurkenndu sláturhúsi og heilbrigðisskoðun var ekki framkvæmd af opinberum dýralækni.
Nánar um vöruna:
- Vöruheiti: Lambakjöt
- Vörumerki: Birkihlíð
- Pökkunardagsetning: 29. sep 2018
- Lýsing: Loftæmdar umbúðir
- Geymsluskilyrði: Kælivara (0-4°C)
- Dreifing: Bændamarkaður Hofsósi 30. sep 2018
- Framleiðandi: Birkihlíð
Þeir sem kunna að hafa kjötið undir höndum geta skilað vörunni til Birkihlíðar, 551 Skagafirði gegn endurgjaldi.