Hveiti ekki tilgreint í pasta
Innkallanir -
14.12.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti (glúteni) við neyslu á Nawras Gele Vermicelli pasta. Varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn hveiti (glúten) án þess að það komi fram í innihaldslýsingu. Miðausturlandamarkaðurinn, sem flytur inn vöruna, innkallar hana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Allar framleiðslulotur eru innkallaðar:
- Vörumerki: Nawras
- Vöruheiti: Gele Vermicelli
- Strikanúmer: Ekki tilgreint
- Nettómagn: 400 g
- Lotunúmer: Allar lotur
- Framleiðsluland: Tyrkland
- Innflytjandi: Miðausturlandamarkaðurinn ehf., Lóuhólum 2-6, 111 Reykjavík
- Dreifing: Miðausturlandamarkaðurinn ehf.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skilað henni í Miðausturlandamarkaðinn þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við Miðausturlandamarkaðinn, Lóuhólum 2-6.