Grunur um salmonellu í karríi
Innkallanir -
23.09.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllun á Bónus karríkryddi. Grunur um salmonellumengun í vörunni kom upp í innra eftirliti Kötlu matvælaiðju ehf. sem framleiðir kryddið.
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Bónus karrí
- Auðkenni/skýringartexti: 120 g dós/ Salmonella muenchen greindist í einni dós. Strikanúmer 5690350051927 með b.f. 13.08.2014.
- Framleiðandi: Katla matvælaiðja ehf., Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.