Aðskotahlutur fannst í Bónus tröllahöfrum
Innkallanir -
05.07.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á Bónus tröllahöfrum með best fyrir dagsetningunum 16.08.2020 og 19.08.2020 vegna þess að aðskotahlutur, líklega plast, fannst í einum poka.
Fyrirtækið Aðföng hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Tröllahafrar
- Strikanúmer: 5690350053273
- Best fyrir: 16.08.2020 og 19.08.2020
- Nettómagn: 1 kg
- Framleiðandi: Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík fyrir Aðföng.
- Dreifing: Varan var seld í Bónus verslunum um land allt á tímabilinu 15. júní til 5. júlí 2019
Viðskiptavinum sem keypt hafa Bónus tröllahafra með best fyrir dagsetningum 16.08.2020 eða 19.08.2020 er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.
Ítarefni