Smitandi hósti í hrossum dregur dilk á eftir sér
|
Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum. Í kuldatíð undanfarinna vikna hefur reynst erfitt að halda góðu lofti í húsunum án þess að slái að hrossum sem gengin eru úr hárum og má reikna með að það hafi haft sitt að segja. Búið er að útiloka allar alvarlegustu veirusýkingarnar sem þekktar eru og leggjast á öndunarfæri hrossa s.s. hestainflúensu, smitandi háls og lungnakvef/ fósturlát (herpes týpa 1) og Rhino-kvef. Unnið er áfram að greiningu bæði á Tilraunastöðinni á Keldum og á Dýralækningastofnun Svíþjóðar. |
Bakteríusýkingar virðast í
mörgum tilfellum fylgja í kjölfarið og geta hrossin þá fengið hita og
graftarkenndan hor í nös. Bakteríuræktun hefur leitt í ljós að oft er um
að ræða streptókaokka sem nú er verið að greina nánar. Slíkar sýkingar
er í mörgum tilfellum hægt að meðhöndla. Því miður er að koma í ljós að
mörg hross eru lengi með þetta kvef, allt upp í 4 vikur og enn sér ekki
fyrir endann á því hversu lengi þau verða að jafna sig að fullu.
Áfram
er ráðlagt að hvíla öll hross með einkenni og verja þau fyrir kulda og
trekki. Samtímis þarf að tryggja þeim gott loft og með hlýnandi veðri
ættu hrossin að geta verið meira úti. Hvíldin er mikilvægust í
byrjunarfasa sjúkdómsins og hestamenn eru hvattir til að vera vel á
verði fyrir fyrstu einkennum sýkingarinnar sem eru þurr hósti, glært
nefrennsli og slappleiki sem þó verður aðeins vart í reið. Það er
ítrekað að ekki á að koma með veika hesta í hús þar sem veikin er ekki
fyrir né breiða sýkinguna út með öðrum hætti. Alls ekki má nota veika
hesta til sýningar eða keppni.
Væntingar eru um að smitálagið
minnki með vorinu og hestahaldið falli þá í eðlilegan farveg.