Salmonella í hitameðhöndluðu fóðri
Frétt -
30.01.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um að greinst hafi Salmonella í hitameðhöndluðu fóðri sem ætlað er kjúklingum. Sýni hefur verið sent í tegundagreiningu en niðurstöður hennar liggja ekki fyrir. Framleiðandi hefur tilkynnt kaupendum fóðursins um greininguna og innkallað fóðrið.
- Vörumerki: Fóðurblandan hf
- Vöruheiti: Holdakurl START
- Framleiðandi: Fóðurblandan hf, Korngörðum 12, 104 Reykjavík
- Framleiðsludagsetning: 12. desember 2012
- Lotunúmer: 9731