Fara í efni

Matvælastofnun stöðvar notkun fjölfosfata í saltfisk

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun (MAST) hefur í dag sent öllum saltfiskframleiðendum bréf með fyrirmælum um að hætta blöndun fjölfosfata í saltfisk og léttsaltaðan fisk. Aðdragandi að þessum fyrirmælum er langur og verður ekki rakinn hér, en á rætur sínar að rekja til þess að stöðugt  er unnið að vöruþróun innan fiskvinnslunnar í þeim tilgangi að auka nýtingu, fjölbreytni og gæði afurða. Í þessu tilfelli voru hins vegar notuð til þess efni sem ekki er heimilt að nota í saltfisk skv. reglugerð um aukefni í matvælum.



  
Fjölfosföt eru leyfð í ýmis matvæli en í fiskframleiðslu er notkun þeirra einungis leyfð í óunninn frystan fisk, s.s. frosin fiskflök, en þá ber að geta þeirra í innihaldslýsingu. Þó að bréf stofnunarinnar sé sent til allra saltfiskverkenda er ljóst að þeir eru ekki allir að blanda fosfötum í framleiðslu sína og hefur bréfið því aðeins upplýsingalegt gildi fyrir suma þeirra. Það er von MAST að framleiðendur fari að fyrirmælum stofnunarinnar en verði eftirlitsmenn varir við óheimila notkun fjölfosfata mun sú starfsemi verða stöðvuð.

Framleiðendur skulu fjarlægja öll fosföt af framleiðslustað ef þar eru eingöngu unnar afurðir sem ekki má setja fosföt í.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?