Ómerktir ofnæmisvaldar í IKEA súkkulaði
Innkallanir -
28.07.2016
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um innköllun á 6 tegundum af súkkulaði. Það er gert vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda. Vörurnar gætu innihaldið heslihnetur og/eða möndlur. Þeir sem eru með ofnæmi fyrir slíku gætu fundið fyrir einkennum eftir neyslu vörunnar en fyrir aðra neytendur er hún hættulaus. Allar dagsetningar hafa verið innkallaðar.
Súkkulaðitegundirnar 6 eru eftirfarandi:
- Choklad Lingon & Bláber 180 g
- Choklad Ljus 100 g.
- Choklad Nöt UTZ 100 g.
- Godis Chokladkrokant 450 g
- Godis Chokladrán 168 g
- Chokladkrokant Bredbar 400
- Lotunúmer: Allar dagsetningar
- Sölu- og dreifingaraðili: IKEA, Kauptúni 4. 210 Garðabæ
- Dreifing: Verslun IKEA
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver IKEA í síma 520-2500 og á www.IKEA.is
Ítarefni
Frétt uppfærð 08.09.16