Lyfjavirk efni í maísmjöli
Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um innköllun á Rapunzel Polenta maísmjöli. Ástæða innköllunarinnar er að við rannsókn á vörunni greindust, í of miklum magni, lyfjavirk efni, atropine og scopolamine. Efnin geta haft eitrunaráhrif á neytendur og varan telst því ekki örugg til neyslu. Matvælastofnun upplýsti Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um innflutning vörunar af hálfu Innnes ehf. Innnes hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við heilbrigðiseftirlitið.
- Vöruheiti: Rapunzel Polenta maísmjöl.
- Framleiðandi: Rapunzel Naturkost.
- Framleiðsluland: Þýskaland
- Þyngd: 500 gr.
- Innflytjandi: INNNES ehf.
- Strikamerking: 4006040120827
- Best fyrir dags.: Allar dagsetningar
- Dreifing: Verslanir um allt land.
Þeir sem kunna að hafa þessa vöru undir höndum er bent á að neyta hennar ekki heldur farga henni eða skila til þeirrar verslunar sem hún var keypt í gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jökull Ragnarsson, gæðastjóri Innnes ehf í síma: 660 4033 eða á netfanginu: hjr@innnes.is.