Eftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi
Frétt -
23.03.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100% starf á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Akureyri frá og með 1. júní 2012.
Helstu verkefni:
- Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
- Eftirlitsstörf á sviði dýraverndar og dýravelferðar
- Samskipti við aðrar stofnanir
- Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Dýralæknismenntun
- Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknirog Hafsteinn Jóh. Hannessoní síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum Eftirlitsdýralæknir eða á starf@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2012. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.