Ert þú verðandi sérfræðingur í fiskeldisdeild? Umsóknarfrestur til 10. janúar nk.
Matvælastofnun óskar eftir að ráða tvo metnaðarfulla og skapandi sérfræðinga í fiskeldisdeild til að taka þátt í að móta og þróa framtíð lagareldis. Um er að ræða 100% starf á starfstöð stofnunarinnar á Patreksfirði, Ísafirði eða í Neskaupsstað.
Markmið fiskeldisdeildar er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra. Traust, gagnsæi og fagleg umgjörð er lykilatriði til að greinin fái að vaxa og dafna í sátt við umhverfið og samfélagið.
Lagareldi er fjölbreytt atvinnugrein með mörgum undirgreinum, s.s sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi, skelrækt og þörungarækt. Lagareldi á sér langa sögu á Íslandi en hefur vaxið hratt síðasta áratuginn. Miðað við núverandi áform getur lagareldi orðið ný stoð í íslenska hagkerfinu og mikilvægt að greinin þróist og vaxi með sjálfbærum hætti.
Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild, þess vegna viljum við fá í okkar hóp tvo metnaðarfulla og skapandi einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í að þróa framtíð lagareldis. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki, þjálfum það og leiðbeinum um allt sem snýr að fiskeldi og því er reynsla af fiskeldi/lagareldi ekki nauðsynleg!
Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta og skapa framtíð í fiskeldisdeild sem ætlar sér að vera leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun á viðfangsefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með fiskeldi
- Skoðanir vegna leyfisúttekta
- Úrvinnsla umsókna um rekstrarleyfi
- Aðkoma að uppbyggingu og stefnumótun fiskeldisdeildar
- Samskipti við hagaðila á sviði fiskeldis
- Önnur tilfallandi verkefni fiskeldisdeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á lagareldi
- Nákvæmni, frumkvæði, lausnarmiðuð nálgun og sjálfstæði í starfi
- Geta til að vinna undir álagi, þrautseigja og aðlögunarhæfni
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
- Framúrskarandi tölvukunnátta
- Bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur gætu þurft að leysa verkefni í ráðningarferlinu. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.
Með umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, tilnefning tveggja meðmælenda og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Matvælastofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar, karl.oskarsson@mast.is eða í síma 530 4800.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2025.