Uppfært: Ólöglegt varnarefni í tahini
Innkallanir -
26.11.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af Himnesku lífrænu hvítu tahini sem Aðföng flytur inn. Ólöglegt varnarefni (etýlen oxíð) sem bannað er að nota í matvælum greindist í tahini. Fyrirtækið innkallar nú loturnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar í gegnum RASFF viðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður og frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem fékk tilkynningu um innköllun frá Aðföngum.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Himneskt
- Vöruheiti: Lífrænt Hvítt Tahini
- Strikamerki: 5690350060028
- Nettómagn: 250 g
- Best fyrir dagsetning: 31.03.2023 og 31.05.2023
- Lotunúmer: L3320077 og L3220112
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
- Dreifing: Bónus, Hagkaup, Stórkaup og Kaupfélag Skagfirðinga.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.