Mistök við hitun á Ora Fiskbollum í karrísósu
Innkallanir -
19.05.2016
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu frá fyrirtækinu Ora um það hafi, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, ákveðið að innkalla Ora Fiskbollur í 850 g umbúðum. Ástæða innköllunarinnar er sú að mistök urðu við hitun vörunnar og telst hún því ekki örugg til neyslu.
- Vöruheiti: Ora Fiskbollur í karrísósu
- Strikamerki: 5690519000070
- Nettoþyngd: 850 g
- Lotunúmer: L1A0912 0070
- Best fyrir: 31.03.2020
- Dreifing: Allar verslanir Krónunar, Nóatúns, Nettó, Úrvals, Kaupfélag Skagfirðinga og verslunin Hlíðberg.
Neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað henni í þá verslun sem hún var keypt í.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Ora í síma 522-2773 eða á netfangið helgab@ora.is