Grunur um salmonellu í kjúklingi
Innkallanir -
21.10.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli merktum Ali, Bónus eða FK vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
- Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
- Lotunúmer: 011-20-37-5-26, merkt sem RLNR:0112037526 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar)
- Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hraðbúðin Hellissandi
Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.