Óheilnæmar aðstæður við pökkun hrísgrjóna
Innkallanir -
30.03.2016
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun barst í gær tilkynning í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF) um hrísgrjón sem framleidd voru við óheilnæmar aðstæður og geta innihaldið úrgang úr nagdýrum. Kaupás ehf. hefur nú, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað frá neytendum hrísgrjón frá First Price og Grøn Balance.
- Vörumerki: First Price, Grøn Balance.
- Vöruheiti: First Price jasmín hrísgrjón, First Price basmati hrísgrjón, Grøn Balance brún hrísgrjón, Grøn Balance basmati hrísgrjón, Grøn Balance jasmín hrísgrjón.
- Strikanúmer: 7311041076392, 7311041076408, 5701410372248, 5701410348847, 5701410348830.
- Nettó þyngd: 1 kg
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Framleiðandi: Euro Basmati GMBH
- Framleiðsluland: Þýskaland, Taíland, Indland.
- Dreifing: Allar verslanir Krónunnar og Kjarvals um allt land og Nóatún Austurveri.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar í framangreindum verslunum er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim í viðkomandi verslun.