Málmflís í vínarbrauðslengjum
Innkallanir -
14.04.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á vínarbrauðslengjum frá Bakarameistaranum vegna málmfísar sem fannst í einni lengjunni. Bakarameistarinn hefur innkallað allar vínarbrauðslengjur af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
- Vöruheiti: Vínarbrauðslengjur
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Dreifing: Öll bakarí Bakarameistarans
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í bakaríið þar sem hún var keypt.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Bakarameistaranum í síma 533-3000, pantanir@bakarameistarinn.is.