Grunur um salmonellu í kjúklingi
Innkallanir -
04.03.2016
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Grunur um salmonellu hefur komið upp í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli. Fyrirtækið hefur innkallað kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 011-16-04-5-34 í samráði við Matvælastofnun.
Fyrirtækið hefur haft samband við sína viðskiptavini og fjarlægt kjúklinga úr kælum.
- Vöruheiti: Bónus, Krónu, Ali…
- Framleiðandinn Matfugl ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ
- Ástæða: Grunur um salmonellu
- Dreifing: Verslanir Bónusar, Krónunar og vörumerkið Ali
Ítarefni
Frétt uppfærð 08.03.16