Grunur um salmonellu í kjúklingi
Innkallanir -
22.09.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum kjúklingi vegna gruns um salmonellu. Reykjagarður hf. hefur stöðvað sölu og innkallar af markaði eina lotu af kjúklingi.
Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi rekjanleikanúmers:
- Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónu kjúklingur (Heill fugl, bringur, lundir, bitar)
- Rekjanleikanúmer: 001-20-33-1-02
- Dreifing: Iceland verslanir, Hagkaupsverslanir, Krónan, KR, Kjarval, Nettó, Costco, Extra24, Heimkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Bjarnabúð, Kjörbúðin, Hlíðakaup
Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila vörunni til viðkomandi verslunar eða beint til Reykjagarðs hf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.