Grunur um salmonellu í glútenfríu súkkulaðikexi
Innkallanir -
28.08.2015
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um innköllun á gútenlausu kexsúkkulaði vegna gruns um salmonellu.
Heilsa ehf. hefur flutt inn þetta súkkulaðikex og hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað kexið og sent út fréttatilkynningu.
- Vörumerki: Schär
- Vöruheiti: Twin BAR wafer
- Strikanúmer: 8008698010235
- Umbúðir: Plastumbúðir
- Nettómagn: 64,5g
- Best fyrir: 26.05.2016
- Framleiðsluland: Holland
- Innflytjandi: Heilsa ehf
- Dreifing: Heilsuhornið Blómaval, Fjarðakaup, Heilsuhúsið, Krónan, Lifandi markaður, Lyfjaver, Nettó, Strax, Heimkaup og Þín verslun.
Sala á ofangreindri vöru hefur verið stöðvuð. Neytendur sem hafa keypt vöruna eru vinsamlega beðnir um að skila henni í verslunina þar sem hún var keypt eða farga henni.
Frekari upplýsingar fást hjá Heilsu ehf í síma 533-3232.