Grunur um plast í súkkulaði frá Nóa Síríusi
Matvælastofnun vekur athygli neytenda á plasti sem ekki er hægt að útiloka að finnist í nokkrum tegundum af Síríus súkkulaði. Nói Síríus hefur innkallað umræddar lotur af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Uppfært 17.01.20 - fleiri tegundir innkallaðar:
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur (Best fyrir dagsetningar merktar bláar eru viðbót):
Plastið sem kann að hafa farið í súkkulaðið er ýmist blátt eða bleikt að lit og ætti því að vera sýnilegt neytendum þegar varan er opnuð. Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim í þeirri verslun þar sem þær voru keyptar eða hjá Nóa Síríusi. Nánari upplýsingar veitir Nói Síríus: noi@noi.is, 575 1800.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Nóa Síríusi 15.01.20
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Fréttatilkynning frá Nóa Síríusi 10.01.20
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á - upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Uppfært 17.01.20 kl. 11:35
Uppfært 17.01.20 kl. 13:01